Sunday, August 10, 2008

Desdemóna

Óþelló og Desdemóna fella hugi saman snemma í leikritinu. Rétt áður en leikritið hefst. Þau gifta sig í laumi án þess að faðir hennar eða nokkur annar viti af því. Það er nokkur aldursmunur á þeim og þau eru ekki úr sama jarðvegi sprottin.

Ástin á milli þeirra er sterk en mun hún geta staðist álagið sem fylgir valdabaráttu og stríði milli þjóða? Óþelló er yfir hernum á Feneyjum og er brátt kallaður út til að stýra vörnum á Kýpurey gegn sókndjörfum her Tyrkja.

No comments: